UPPLÝSINGAR
Bókunar- og viðskiptaskilmálar
1. Seljandi og samskipti
Seljandi þjónustunnar er Golfklúbbur Selfoss (GOS), kennitala 681174-0369, Svarfhólsvöllur, Selfossi. Netfang: gosgolf@gosgolf.is. Sími: 482 3335.
GOS ber ábyrgð á afhendingu golfhermaþjónustunnar og afgreiðslu bókana, kvartana og endurgreiðslna. Stundagátt er bókunarkerfið sem GOS notar við þjónustuna.
2. Bókun og staðfesting
Bókun gildir fyrir þann hermi eða þá herma, dagsetningu og tíma sem fram koma í lokayfirliti og bókunarstaðfestingu. Viðskiptavinur yfirfer þessar upplýsingar og sínar samskiptaupplýsingar áður en hann staðfestir.
Almenn bókunarlengd er að lágmarki 60 mínútur og að hámarki fjórar klukkustundir, með 30 mínútna lengdarskrefum. Almennur opnunarrammi er kl. 06:00 til kl. 01:00 aðfaranótt næsta dags. Sérstakar lokanir og tiltækir tímar koma fram í bókunarkerfinu.
Bókun telst staðfest þegar kerfið hefur staðfest hana og viðskiptavinur fær bókunarnúmer. Tímabundin frátekt eða opnun greiðslusíðu er ekki ein og sér staðfest bókun. Staðfesting er send á skráð netfang.
Berist staðfesting ekki, eða komi upp misræmi, skal hafa samband við GOS með upplýsingum um dag og tíma áður en sama bókun er greidd aftur. Ekki senda fullt kortanúmer, öryggisnúmer korts eða innskráningarkóða í tölvupósti.
3. Verð og greiðslur
Verð er birt í íslenskum krónum. Heildarverð, með viðeigandi opinberum gjöldum, kemur fram áður en greiðsla er staðfest. Reiknað er samkvæmt lengd, fjölda herma og verðflokki sem gildir um valda tíma. Tímabil kl. 00:00–01:00 tilheyrir kvöldinu á undan við verðflokkun.
Félagsmannakjör, þegar við á, byggjast á staðfestri félagsaðild og þeim kjörum sem birtast í lokayfirliti. Gildandi verð er á verðskrársíðu og í bókunaryfirliti. Síðari verðbreyting breytir ekki sjálfkrafa verði áður staðfestrar bókunar.
Kortagreiðsla fer fram í greiðsluviðmóti PAYSTRAX. Þær kortategundir og greiðsluleiðir sem GOS tekur við birtast í kaupferlinu. Bókunarstaða og greiðslustaða eru aðskildar upplýsingar; bókunarnúmer eitt staðfestir ekki að kortafærsla hafi tekist.
Eldri inneignir og gjafabréf halda sínum útgáfuskilmálum. Þessi skilmálatexti breytir hvorki fjárhæð þeirra né gildistíma og staðfestir ekki að allar eldri inneignir séu þegar nýtanlegar á nýja vefnum. GOS aðstoðar við afgreiðslu eldri réttinda á meðan yfirfærsla stendur yfir.
4. Afbókun og breyting á tíma
Almennur afbókunarfrestur er að minnsta kosti 12 klukkustundir fyrir upphaf bókunar. Fyrir tíma kl. 18:00 þarf afbókun því að berast eigi síðar en kl. 06:00 sama dag.
Afbóka skal með afbókunarleið sem fylgir bókunarstaðfestingu eða á Mínum síðum þegar sú aðgerð er tiltæk. Sé sjálfsafgreiðsluleiðin ekki tiltæk má senda ótvíræða afbókun á gosgolf@gosgolf.is með bókunarnúmeri, nafni og bókuðum tíma. Varðveita skal staðfestingu eða afrit tilkynningar.
Ósk um færslu bókunar er ekki staðfest fyrr en GOS eða kerfið hefur staðfest nýjan tíma. Breyting á tíma er háð lausum hermi og mögulegum verðmun.
Við gilda afbókun með að minnsta kosti 12 klukkustunda fyrirvara fæst full endurgreiðsla þess sem greitt var fyrir hinn afbókaða tíma, án afbókunargjalds. Kortagreiddur hluti er endurgreiddur á sama greiðslumiðil og notaður var við kaupin. Hluti sem greiddur var með inneign færist aftur á sömu upprunainneign samkvæmt skilmálum hennar; hann verður ekki sjálfkrafa að peningagreiðslu.
Endurgreiðsla er afgreidd án óþarfa tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir móttöku gildrar afbókunar. Birting hennar á kortayfirliti getur tekið lengri tíma vegna afgreiðslu greiðsluþjónustu eða kortaútgefanda. Endurgreiðslan getur þurft handvirka afgreiðslu hjá GOS; afbókunarstaðfesting ein staðfestir ekki að kortafærslan hafi þegar verið endurgreidd.
Við afbókun með minna en 12 klukkustunda fyrirvara eða þegar viðskiptavinur mætir ekki er almennt ekki endurgreitt, nema annað sé sérstaklega samþykkt við GOS eða leiði af ófrávíkjanlegum réttindum viðskiptavinar. Sé bókað með minna en 12 klukkustunda fyrirvara er hinn almenni afbókunarfrestur liðinn við bókun.
5. Þjónusta á tilteknum tíma og réttur til að falla frá kaupum
Stakur golfhermatími er tómstundaþjónusta á fyrirfram ákveðnum degi og tíma. Um slíka bókun gildir undanþága l-liðar 18. gr. laga nr. 16/2016 frá almennum 14 daga rétti til að falla frá fjarsölusamningi. Afbókunarréttur samkvæmt 4. kafla hér að framan gildir engu að síður.
Þessi undanþága er ekki yfirlýsing um að sami fráhvarfsréttur gildi um mánaðaráskriftir eða gjafabréf án ákveðins bókunartíma. Um slík kaup þarf að veita sérstakar upplýsingar þegar þau eru boðin til sölu.
6. Aðgangur og umgengni
Aðgangur að aðstöðunni er fyrir bókaðan tíma. GOS veitir þær aðgangsupplýsingar sem þarf til að nýta bókunina. Viðskiptavinur skal hafa samband við GOS ef þær vantar eða aðgangur virkar ekki. Aðgangskóðum og persónulegum innskráningarkóðum skal haldið aðskildum og ekki miðlað til óviðkomandi.
Viðskiptavinir skulu fara eftir leiðbeiningum um örugga notkun búnaðar, gæta umgengni og ljúka notkun aðstöðunnar fyrir lok bókaðs tíma. Seinkuð mæting lengir ekki sjálfkrafa bókunina. Tilkynna skal bilanir eða hættu svo fljótt sem unnt er.
7. Bilanir, niðurfelling og kvartanir
Geti GOS ekki veitt bókaða þjónustu, til dæmis vegna lokunar eða bilunar, skal GOS hafa samband við viðskiptavin og afgreiða endurgreiðslu fyrir þann hluta þjónustunnar sem ekki var veittur. Annar tími eða inneign getur komið í stað endurgreiðslu ef viðskiptavinur samþykkir það sérstaklega.
Kvartanir skulu sendar á gosgolf@gosgolf.is með bókunarnúmeri og lýsingu á atvikinu. Viðskiptavinur getur leitað til þar til bærs úrlausnaraðila eða dómstóla eftir því sem við á. Skilmálarnir takmarka ekki lögbundin úrræði vegna galla eða vanefnda og fela ekki í sér almenna undanþágu GOS frá skaðabótaábyrgð.
8. Persónuvernd og breytingar á skilmálum
Um vinnslu persónuupplýsinga gildir persónuverndarstefna GOS-golfherma. Ný útgáfa skilmála er birt með dagsetningu. Breytingar gilda ekki afturvirkt um áður staðfestar bókanir nema sérstaklega sé samið um það eða lög mæli fyrir um annað. Um viðskiptin gilda íslensk lög, með fyrirvara um ófrávíkjanleg réttindi neytenda.